Sviðsskrekkur.
Haldiði að það hafi nú ekki verið gaman hjá mínum í skólanum í dag er minn vippaði sviðakjamma á borð Dana, þetta uppátæki mitt kom misvel við fólkið og horfðu margir á þegar ég og tveir skólabræður mínir snæddum smetti þetta, þarna leið manni eins og fuðudýri í færeysku fjölleikahúsi!, þarna voru nokkrir múslimar og þótti þeim þetta óviðeigandi með öllu og báðu þeir Múhammad að fyrirgefa okkur þennan viðbjóð hið snarasta, gaman að því. Höfðu nokkrir orð á því er ég beit augað í tvennt að ég væri karlmaður mikill og eflaust marga fjöruna sopið í gegnum tíðina, nú er það svo að fólk gengur að mér og biður mig að éta þetta og hitt í tíma og ótíma, einnig má reikna með að ég verði að fylgja þessu atriði eftir með einhverskonar áhættuatriði, en hvað? hvað getur þú ráðlagt mér um næsta atriði??
9 Comments:
endilega að koma með meira fyrir múslimana. kv h
Ég verð nú bara að segja þér að ég er mjög hreykin af mági mínum að sína þessum veimiltittu dönum hvernig sannir íslendingar eru... sannir víkingar!!!
...og hver var það sem gaf þér einn á kjammann???
Það varst þú sem komst með hálft höfuð helblóðugt frá fróninu
Hver er H???
Býður þeim brennivín og hákarl næst.. eða harðfisk og Álaborgar Ákavíti... Eða bara ert stilltur svo þú komist passlega dæmdur frá náminu þínu!
Þú gætir stuðað múslimina meira með að teikna mynd af átrúnaðargoðinu þeirra, það er alltaf vinsælt á þínum heimaslóðum. Varðandi næsta trix, þá geturðu tekið þessar Heinz baunadósir upp án þess að þær detti...
Eða bara étið skít.
Gefðu svo heiðingjunum brennivín, þeira hafa gott af því.
Þú gætir nú tekið sýningaratriði í Íslenskri glímu eins og í brekkunni forðum en sleppir kanski sköflungssköfun og bringubeinsbrotum í þetta skiptið.
Sælla minninga minn kæri, þá vorum við ungir og vitlausir
Skrifa ummæli
<< Home